Um Haga

Matvöruverslanir

Hagar eiga tvær af stærstu smásölukeðjum landsins, sem reknar eru undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups. Bæði eru þetta rótgróin fyrirtæki sem náð hafa sterkri markaðsstöðu á löngum tíma.

Bónus

Bónus var stofnað árið 1989 og fagnar því 30 ára afmæli fyrirtækisins um þessar mundir. Markmið Bónus sem lágvöruverðsverslunar hefur alla tíð verið að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð. Lykillinn að því hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, styttri opnunartími en gengur og gerist, takmarkað vöruúrval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði.

_A126729_1559316631394


 

Það er mikilvægt fyrir Bónus að halda því trausti sem almenningur hefur sýnt verslunarkeðjunni í gegnum árin. Eitt af leiðarljósum fyrirtækisins hefur ávallt verið að láta viðskiptavini sína njóta ávinnings af hagstæðum samningum og innkaupum. Það er einnig mikilvæg staðreynd að Bónus býður sama vöruverð í verslunum sínum um land allt, sem reynst hefur afar dýrmætt gagnvart neytendum. Það sannast ítrekað í verðkönnunum að Bónus býður lægsta vöruverð á Íslandi, þrátt fyrir harðnandi samkeppni. 

Í árslok rak Bónus 30 verslanir, 18 á höfuðborgarsvæðinu og 12 á stærstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Í mars opnaði Bónus nýja verslun sína á Garðatorgi í Garðabæ og eru verslanirnar í dag því 31. Stöðugildin í árslok voru 415 en fjöldi starfsmanna var 926.

Bonus

Framkvæmdastjórn Bónus skipa (frá vinstri): Erla Magnúsdóttir, fjármálastjóri, Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri, og Guðlaugur Gauti Þorgilsson, rekstrarstjóri.

Hagkaup

Hagkaup var stofnað árið 1959 og fagnar því 60 ára afmæli á árinu. Í upphafi var Hagkaup rekið sem póstverslun. Fyrsti stórmarkaðurinn var svo opnaður í Skeifunni árið 1970, þar sem Hagkaup rekur enn verslun sína. Hagkaup er smásöluverslun sem leggur megináherslu á að bjóða íslenskum neytendum góða þjónustu og breitt vöruúrval sem spannar allar daglegar þarfir heimilisins. Það á við um matvöru, fatnað, snyrtivöru, heimilisvöru og tómstundavöru þannig að viðskiptavinir geti gert öll sín innkaup í einni ferð. Þá starfrækir Hagkaup þrjú Krispy Kreme-kaffihús, auk tveggja MAC snyrtivöruverslana.

_A126326_1559316698401

Tilkynnt hefur verið að dregið verið úr áherslu á fatnað og að fatadeildir verði minnkaðar eða lagðar niður í verslunum. Þá hefur verið tilkynnt um fækkun Krispy Kreme-kaffihúsa.

Í árslok rak Hagkaup tíu verslanir, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu, og er sama verð í þeim öllum. Hagkaup rekur einnig Stórkaup, sem er birgðaverslun fyrir fyrirtæki, mötuneyti, skip, veitingastaði og söluturna. Verslun Hagkaups í Borgarnesi var lokað í apríl sl. Tvær verslanir Hagkaups eru opnar allan sólarhringinn, í Skeifunni og Garðabæ. Í árslok voru starfsmenn fyrirtækisins 886 í 431 stöðugildi.

28_A129927

Framkvæmdastjórn Hagkaups skipa (frá vinstri): Arndís Arnarsdóttir, starfsmannastjóri, Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Svanberg Halldórsson, rekstrarstjóri verslana og Brynjar Helgi Ingólfsson, rekstrarstjóri innkaupa- og markaðssviðs.