Stjórnarhættir

Framkvæmdastjórn

Finnur Oddsson (f. 1970)

Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olíuverzlun Íslands ehf., Noron ehf., Reykjavíkur Apótek ehf., FKV ehf., Effectus ehf. og Mynto ehf. Finnur situr jafnframt í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og Startup Iceland. Finnur á 100.000 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

Guðrún Eva Gunnarsdóttir (f. 1978)

Gudrun-Eva

Guðrún Eva er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Guðrún Eva var ráðin í maí 2010. Þá hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra Hagkaups frá árinu 2007 og starfi fjármálastjóra Banana og Ferskra kjötvara 2006-2007. Fram að þeim tíma starfaði hún á aðalskrifstofu Haga 2005-2006 en í fjárhagsdeild 10-11 og sérvörusviðs Haga (áður Baugs) árin 2001-2005. Guðrún Eva situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Mjöll-Frigg ehf., Noron ehf., Reykjavíkur Apótek ehf., FKV ehf., Hagar verslanir ehf., Olíuverzlun Íslands ehf. (varamaður) og Record Records ehf. (varamaður). Hvorki Guðrún Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

magnús magnússon (F. 1988)

Magnús er framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum en hann hóf störf þann 1. febrúar 2021. Magnús er með M.Eng. gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá UC Berkeley í Kaliforníu, og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Magnús hefur mikla reynslu af stefnumótun og almennum rekstri, bæði hérlendis og erlendis. Á árinu 2020 starfaði hann sem sjálfstæður ráðgjafi, eftir að hafa leitt stefnumótunarteymi Marel árin þar á undan. Þar áður starfaði Magnús sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company þar sem hann aðstoðaði fjölda alþjóðlegra fyrirtækja með stefnumótun, rekstrarumbætur og stærri umbreytingar, og enn áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics. Magnús situr í stjórn 2M ehf. Magnús á enga hluti í Högum beint en er fjárhagslega tengdur 2M ehf. sem á 100.000 hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

Eiður Eiðsson (F. 1968)

Eiður er framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum. Hann hóf störf í janúar 2021. Eiður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu í upplýsingatækni og stafrænni þróun þar sem hann hefur komið að bæði grunnrekstri í upplýsingatækni og eins stafrænni umbreytingu fyrirtækja eins og Arion banka og VÍS. Eiður á 100.000 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

Guðmundur Marteinsson (f. 1965)

Gudmundur

Guðmundur er framkvæmdastjóri Bónus. Hann er menntaður vélstjóri frá Vélskóla Íslands og stúdent frá Verslunarskóla Íslands. Guðmundur hóf störf hjá Bónus árið 1992 og hefur gengið þar í öll störf. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra árið 1998. Hvorki Guðmundur né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

sigurður reynaldsson (f. 1966)

Sigurður er framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga, þ.e. Útilífs, ZARA (Noron), og Reykjavíkur Apóteks. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaups og sérverslana Haga árið 2019. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Haga 2011-2019 og framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar 10-11 á árunum 2008-2011. Sigurður var innkaupastjóri matvöru í Hagkaup 1999-2008 en hann hóf störf í Hagkaup árið 1990 og starfaði lengst af sem verslunarstjóri til ársins 1999. Sigurður situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Hagar verslanir ehf., Noron ehf., Reykjavíkur Apótek ehf., MBKF1 ehf., Múrbúðin ehf. og KS smíði ehf. (varamaður). Hvorki Sigurður né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.

jón ólafur halldórsson (f. 1962)

22_A128660

Jón Ólafur er framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands (Olís). Hann hefur B.Sc.-gráðu í véltæknifræði frá Copenhagen University College of Engineering, AMP gráðu frá IESE í Barcelona, MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Jón Ólafur var ráðinn forstjóri Olís árið 2014. Hann var áður framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Olís frá 1995, verkefnastjóri hjá Jarðborunum 1994, forstöðumaður hjá Hafnarbakka 1991-1993 og starfaði sem véltæknifræðingur hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna 1988-1990. Jón Ólafur á sæti í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins og er jafnframt formaður Samtaka verslunar og þjónustu. Jón Ólafur situr í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja: Mjöll-Frigg ehf., Marga ehf., Abena Ísland ehf. og Garður ehf. Hvorki Jón Ólafur né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta-eða samkeppnisaðila Haga.

Kjartan Már Friðsteinsson (f. 1951)

Kjartan

Kjartan Már er framkvæmdastjóri Banana. Hann hefur Cand. Oecon-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Kjartan Már hefur verið framkvæmdastjóri Banana frá árinu 1995. Hann var framkvæmdastjóri hjá Ásgeiri Sigurðssyni hf. 1983-1995 og skrifstofustjóri hjá Gunnari Eggertssyni hf. 1977-1983. Kjartan Már situr í stjórn Satúrnus ehf. Kjartan Már á 14.500 hluti í Högum hf. Aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga ekki hluti í félaginu. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga. 

Lárus Óskarsson (f. 1960)

Larus

Lárus er framkvæmdastjóri Aðfanga og hefur sinnt því starfi frá árinu 1998. Fram að því var Lárus innkaupa- og markaðsstjóri matvöru hjá Hagkaup frá 1993, en hafði áður sinnt innkaupum og rekstri ávaxta- og grænmetislagers Hagkaups frá 1991 og innkaupum matvöru og sérvöru fyrir Hagkaup frá 1988. Hann annaðist rekstur vöruhúss og dreifingar, sem og innkaup, hjá Sláturfélagi Suðurlands 1980-1988. Lárus situr í stjórn FKV ehf. Hvorki Lárus né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskipta- eða samkeppnisaðila Haga.