Undirnefndir
Hluthafar Haga hf. kusu sér tilnefningarnefnd á aðalfundi félagsins 2018. Í nefndinni skulu sitja að lágmarki þrír einstaklingar en stjórnarmenn Haga hf. skulu ekki mynda meirihluta hennar. Meirihluti nefndarmanna skal vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess.
Stjórn Haga hf. hefur skipað tvær undirnefndir stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Nefndarmenn eru þrír í hvorri nefnd fyrir sig. Að minnsta kosti tveir nefndarmenn í undirnefnd stjórnar þurfa að vera óháðir félaginu og stjórnendum þess.
tilnefningarnefnd
Hlutverk tilnefningarnefndar er að tilnefna frambjóðendur til setu í stjórn Haga hf. fyrir árlegan aðalfund, eða almennan hluthafafund, ef til stjórnarkjörs kemur, í samræmi við samþykktir félagsins og starfsreglur nefndarinnar.
Tilnefningarnefnd skal meta hugsanlega frambjóðendur og tilvonandi stjórnarmenn félagsins út frá hæfni, reynslu og þekkingu og þeim kröfum sem gerðar eru til stjórnarmanna í Högum hf. á hverjum tíma.
Tilnefningarnefndina skipa nú Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítala og formaður nefndarinnar, Björg Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi, og Símon Á. Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi.
Stjórn Haga hf. hefur sett tilnefningarnefnd starfsreglur sem samþykktar voru þann 27. mars 2019 og taka þær m.a. mið af fyrirmælum sáttar Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Starfsreglurnar verða lagðar fyrir aðalfund 2019 til samþykktar.
Endurskoðunarnefnd
Hlutverk endurskoðunarnefndar er m.a. að hafa eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila. Nefndinni ber að fara yfir fjárhagslegar upplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar félagsins. Endurskoðunarnefnd skal yfirfara mikilvæg atriði varðandi reikningsskil félagsins, þ.m.t. flókin og óvenjuleg viðskipti og matskennda liði. Endurskoðunarnefnd skal enn fremur yfirfara stjórnarháttayfirlýsingu félagsins. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.
Endurskoðunarnefndina skipa nú Anna Þórðardóttir, endurskoðandi og formaður nefndarinnar, Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Högum hf., og Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður í Högum hf. Nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.
Endurskoðunarnefnd hefur sett sér starfsreglur sem skulu yfirfarnar árlega og samþykktar af stjórn. Núgildandi starfsreglur endurskoðunarnefndar voru samþykktar á stjórnarfundi félagsins þann 26. apríl 2018.
Starfsárið 2018-19 hélt endurskoðunarnefnd sex fundi og mættu allir nefndarmenn á alla fundina.
Starfskjaranefnd
Starfskjaranefnd annast það hlutverk stjórnar að undirbúa tillögu að starfskjarastefnu félagsins, tillögu til hluthafafundar um starfskjör stjórnarmanna og framkvæmd starfssamninga við forstjóra og aðra þá starfsmenn er heyra undir stjórn félagsins. Starfskjaranefnd skal skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.
Starfskjaranefnd skipa nú Erna Gísladóttir, stjórnarformaður Haga og formaður nefndarinnar, Davíð Harðarson, stjórnarmaður í Högum hf., og Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarmaður í Högum hf. Meirihluti nefndarmanna er óháður endurskoðendum Haga hf., daglegum stjórnendum félagsins og stórum hluthöfum þess.
Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur sem skulu yfirfarnar árlega og samþykktar af stjórn. Núgildandi starfsreglur endurskoðunarnefndar voru samþykktar á stjórnarfundi félagsins þann 16. maí 2019.
Starfsárið 2018-19 hélt starfskjaranefnd fjóra fundi og mættu allir nefndarmenn á alla fundina.
Framkvæmd starfskjarastefnu
Starfskjaranefnd hefur gætt að framkvæmd gildandi starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 2018. Starfskjarastefnan er leiðbeinandi fyrir stjórn félagsins. Stjórnarmenn hafa fengið greidd laun fyrir stjórnarsetu í samræmi við ákvörðun hluthafafundar, og föst mánaðarleg þóknun hefur verið ákveðin fyrir störf nefndarmanna í undirnefndum stjórnar, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Launakjör stjórnenda félagsins eru ákveðin í skriflegum samningum, bæði hvað varðar föst og breytileg kjör. Upplýsingar hafa verið veittar um laun forstjóra og annarra lykilstjórnenda í ársskýrslu. Kjör annarra starfsmanna byggja á skriflegum ráðningarsamningum eða eru grundvölluð á ákvæðum kjarasamninga eins og venja er fyrir á vinnumarkaði. Stjórn félagsins hefur ekki gert samninga við starfsmenn eða sett reglur um kauprétti á hlutabréfum í félaginu á starfsárinu. Jafnréttissjónarmiðum er fylgt eftir með framkvæmd jafnréttisstefnu Haga. Þá hafa öll fyrirtæki samstæðunnar hlotið Jafnlaunavottun.
Það er mat nefndarinnar að greiðslur launa til stjórnar og starfsmanna og önnur kjör þeirra séu í samræmi við starfskjarastefnuna.