Sérvöruverslanir
Hagar reka tvær sérvörukeðjur, undir vörumerkjum Útilífs og Zara, auk sérvöruhluta Hagkaups. Sérvöruverslunum Haga hefur fækkað undanfarin misseri en verslunum Topshop, Dorothy Perkins og Karen Millen var lokað á rekstrarárinu. Þá var verslun Zara í Smáralind og Kringlu sameinuð í stærri og glæsilegri verslun á tveimur hæðum í Smáralind.
Stjórnendur á sérvörusviði eru (frá vinstri): Þrúður Maren Einarsdóttir, fjármálastjóri sérvörusviðs, Hörður Magnússon, rekstrarstjóri Útilífs, og Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Zara.
Útilíf
Útilíf er öflugt og rótgróið smásölufyrirtæki með íþrótta- og útivistarvörur en fyrirtækið var stofnað árið 1974 þegar verslun fyrirtækisins var opnuð í Glæsibæ. Í dag eru Útilífsverslanirnar tvær, önnur í Kringlu og hin í Smáralind.
Verslanir Útilífs skiptast í íþróttavörudeild, barnadeild, skódeild, útivistardeild, sunddeild, skíða- og snjóbrettadeild, veiðideild og hjóladeild. Mikil áhersla er lögð á vandað vöruúrval og bestu mögulegu gæði, en einnig vörur í ýmsum verðflokkum þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Útilíf vill veita viðskiptavinum sínum afburðagóða þjónustu og kappkostar því að í öllum deildum starfi sérfræðingar á viðkomandi sviði.
Hjá Útilíf starfa 54 starfsmenn í 27 stöðugildum.
Zara
Zara er ein stærsta tískuverslunarkeðja heims og selur fatnað og fylgihluti fyrir dömur, herra og börn en fyrsta Zara-verslunin var opnuð á Íslandi árið 2001. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á hönnun eftir nýjustu tískustraumum, hraða vöruveltu, hagkvæma aðfangakeðju og sanngjarnt verð. Ein Zara-verslun er á Íslandi, staðsett í Smáralind, og er hún rekin með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni.
Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara felst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tískuheiminum hverju sinni og ráða viðtökur viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþróun.
Starfsmenn Zara eru 60 í 30 stöðugildum.