NASDAQ ICELAND
Hlutabréfin
Viðskipti með hlutabréf Haga á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hófust þann 16. desember 2011. Útgefið hlutafé í Högum nam 1.213.333.841 krónum í árslok og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Í lok árs námu eigin hlutir 23 milljónum króna að nafnverði. Auðkenni félagsins er HAGA.
Í lok rekstrarársins, þann 29. febrúar 2020, stóð gengi hlutabréfa í Högum í 46,45 kr. á hlut, samanborið við 42,95 kr. á hlut í lok febrúar 2019 og hækkuðu bréf félagsins því um 8,15% á síðastliðnu rekstrarári. Verð í lok skráningardags þann 16. desember 2011 var 15,95 kr. á hlut.
Þróun hlutabréfaverðs
Hluthafar
Samkvæmt hlutaskrá félagsins voru hluthafar 676 talsins í byrjun rekstrarársins og 684 í lok þess. Stærsti einstaki hluthafinn er Gildi – lífeyrissjóður með 14,56% hlut. Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins eiga óbeint 14,01% í félaginu en þeir samanstanda af A-, B- og S-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. 20 stærstu hluthafar félagsins eiga samtals 80,36% hlut en sömu hluthafar áttu samtals 74,44% í lok síðasta árs. 20 stærstu hluthafarnir í lok rekstrarársins 2018/19 áttu þá 82,37% hlut. Listann má sjá hér að neðan:
Hluthafar | Fjöldi hluta 29.02.2020 |
% | Fjöldi hluta 28.02.2019 |
% | |
---|---|---|---|---|---|
1 | Gildi – lífeyrissjóður | 176.714.721 | 14,56% | 151.714.721 | 12,50% |
2 | Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild | 127.500.000 | 10,51% | 120.680.000 | 9,95% |
3 | Lífeyrissjóður verzlunarmanna | 120.687.852 | 9,95% | 100.687.852 | 8,30% |
4 | Birta lífeyrissjóður | 77.765.739 | 6,41% | 69.535.498 | 5,73% |
5 | Stapi lífeyrissjóður | 60.534.251 | 4,99% | 41.803.251 | 3,45% |
6 | Samherji hf. | 51.211.948 | 4,22% | 112.343.738 | 9,26% |
7 | Íslensk verðbréf - safnreikn. | 48.741.541 | 4,02% | 0 | 0,00% |
8 | Festa - lífeyrissjóður | 46.775.169 | 3,86% | 37.895.169 | 3,12% |
9 | Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild | 40.137.000 | 3,31% | 48.929.200 | 4,03% |
10 | Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 32.734.665 | 2,70% | 24.856.975 | 2,05% |
11 | Global Macro Absolute Return | 30.229.195 | 2,49% | 37.380.455 | 3,08% |
12 | Frjálsi lífeyrissjóðurinn | 29.700.308 | 2,45% | 40.768.518 | 3,36% |
13 | Hagar hf. | 22.986.329 | 1,89% | 0 | 0,00% |
14 | Stefnir - ÍS 15 | 21.268.540 | 1,75% | 31.523.995 | 2,60% |
15 | Arion banki hf. | 19.046.062 | 1,57% | 11.048.650 | 0,91% |
16 | Landsbréf - Úrvalsbréf | 16.128.510 | 1,33% | 14.597.510 | 1,20% |
17 | Vátryggingafélag Íslands hf. | 15.701.200 | 1,29% | 11.500.000 | 0,95% |
18 | Global Macro Portfolio | 13.723.319 | 1,13% | 18.553.133 | 1,53% |
19 | Stefnir - ÍS 5 | 12.037.608 | 0,99% | 19.058.673 | 1,57% |
20 | Lífsverk lífeyrissjóður | 11.455.527 | 0,94% | 10.311.080 | 0,85% |
20 stærstu hluthafar samtals | 975.079.484 | 80,36% | 903.188.418 | 74,44% | |
Aðrir hluthafar samtals | 238.254.357 | 19,64% | 310.145.423 | 25,56% | |
Skráð hlutafé samtals | 1.213.333.841 | 100,00% | 1.213.333.841 | 100,00% | |
Hagar hf. – eigin bréf | 22.986.329 | 1,89% | 0 | 0,00% | |
Útistandandi hlutir samtals | 1.190.347.512 | 98,11% | 1.213.333.841 | 100,00% |
Eins og áður segir voru hluthafar í árslok 684 talsins en þeim má skipta í nokkra flokka. 493 einstaklingar eiga hlut í félaginu, með samtals um 4,5% af heildarhlutafé, en á sama tíma á fyrra ári voru 498 einstaklingar hluthafar í félaginu með 4,0%. 35 lífeyrissjóðir eiga 64,7% hlut í félaginu en á fyrra ári áttu 33 lífeyrissjóðir 58,2% hlut í því. Aðrir fjárfestar eru 149 talsins og eiga 24,0% hlut. Á fyrra ári voru aðrir fjárfestar 140 talsins með 20,7% hlut. Þá eru 6 erlendir fjárfestar í félaginu og eiga þeir 4,9% hlut.
Flokkur | Fjöldi hluta | % | Fjöldi hluthafa | % |
---|---|---|---|---|
Einstaklingar | 54.920.813 | 4,5% | 493 | 72,1% |
Lífeyrissjóðir | 784.693.862 | 64,7% | 35 | 5,1% |
Erlendir fjárfestar | 59.928.970 | 4,9% | 6 | 0,9% |
Aðrir fjárfestar | 290.803.867 | 24,0% | 149 | 21,8% |
Eigin bréf | 22.986.329 | 1,9% | 1 | 0,1% |
Hlutafé samtals | 1.213.333.841 | 100,0% | 684 | 100,0% |
Í næstu töflu hér á eftir má sjá dreifingu hluta í félaginu í árslok. Flestir hluthafar, 292 talsins, eiga 10.000-99.999 hluti eða 0,9% hlutafjár. Þrír hluthafar eiga hvor um sig yfir 100.000.000 hluti í félaginu.
Fjöldi hluta | Fjöldi hluthafa | % | Fjöldi hluta | % |
---|---|---|---|---|
1-9.999 | 181 | 26,5% | 721.589 | 0,1% |
10.000-99.999 | 292 | 42,8% | 10.867.866 | 0,9% |
100.000-499.999 | 112 | 16,4% | 20.945.775 | 1,8% |
500.000-999.999 | 32 | 4,7% | 21.322.782 | 1,8% |
1.000.000-4.999.999 | 35 | 5,1% | 75.783.379 | 6,4% |
5.000.000-9.999.999 | 6 | 0,9% | 46.049.247 | 3,9% |
10.000.000-99.999.999 | 22 | 3,2% | 589.754.301 | 49,5% |
> 100.000.000 | 3 | 0,4% | 424.902.573 | 35,7% |
Samtals útistandandi | 683 | 100,0% | 1.190.347.512 | 100,0% |
Eigin bréf | 1 | 0,0% | 22.986.329 | 0,0% |
Samtals | 684 | 100,0% | 1.213.333.841 | 100,0% |
Aðalfundur
Aðalfundur Haga hf. árið 2020 verður haldinn þann 9. júní nk. og hefst hann kl. 09:00. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Dagskrá fundarins og tillögur stjórnar hafa þegar verið auglýstar en niðurstöður fundarins verða birtar í Kauphöll og á vefsíðu félagsins strax að honum loknum.
Arðgreiðslustefna
Stjórn Haga hefur mótað arðgreiðslustefnu félagsins en hana má sjá í heild sinni hér.
Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins þann 9. júní 2020 að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna reikningsársins 2019/20. Er því ákveðið að víkja frá arðgreiðslustefnu félagsins, vegna þeirrar óvissu sem nú ríkir um efnahagshorfur í kjölfar COVID-19 faraldursins, en samkvæmt arðgreiðslustefnunni er stefnt að því að greiða hluthöfum arð sem nemi að lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstrarárs.
Fjárhagsdagatal
Eftirfarandi fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021 hefur verið samþykkt af stjórn félagsins:
1. ársfjórðungur | 29.06.2020 |
2. ársfjórðungur | 29.10.2020 |
3. ársfjórðungur | 21.01.2021 |
4. ársfjórðungur | 19.05.2021 |
Aðalfundur 2021 | 10.06.2021 |