Um Haga

Sérvöruverslanir og apótek

Hagar reka tvær sérvörukeðjur, undir vörumerkjum Útilífs og Zara. Auk þess eiga Hagar 90% hlut í Reykjavíkur Apóteki sem rekur tvö apótek undir vörumerki sínu.

_a123973_1527511251161

Stjórnendur á sérvörusviði eru (frá vinstri): Þrúður Maren Einarsdóttir, fjármálastjóri, Hörður Magnússon, rekstrarstjóri Útilífs, og Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Zara. Framkvæmdastjóri Reykjavíkur Apóteks er Ólafur Adolfsson.

Útilíf

Útilíf er öflugt og rótgróið smásölufyrirtæki á sviði íþrótta- og útivistar og var fyrirtækið stofnað árið 1974 þegar verslun fyrirtækisins var opnuð í Glæsibæ. Í dag rekur Útilíf tvær stórglæsilegar verslanir á höfuðborgarsvæðinu, í Kringlunni og Smáralind, auk vefverslunar sem opnaði á árinu.

Hjá Útilíf er lögð áhersla á vandað vöruúrval tengdu íþróttum og útivist. Leitast er við að bjóða upp á íþrótta- og útivistarfatnað og vörur í hæsta gæðaflokki ásamt því að hafa úrval í helstu verðflokkum. Hjá Útilíf starfa sérfræðingar í hverri deild sem tryggja viðskiptavinum framúrskarandi aðstoð og þjónustu á vörum við allra hæfi. Helstu deildir vöruflokka eru: sportdeild, skódeild, útivistardeild og skíðadeild. Miðlægur vörulager Útilífs sér um tollafgreiðslu, lagerhald, afgreiðslu og vörumerkingar fyrir flestar vörur Útilífs. Þetta fyrirkomulag tryggir hraða afgreiðslu á vörum til verslana og þar af leiðandi hafa viðskiptavinir Útilífs ávallt aðgang að nýjustu vörulínunum hverju sinni.

Í byrjun árs opnaði glæsileg vefverslun Útilífs þar sem viðskiptavinir geta nálgast um 3.000 íþrótta- og útivistarvörur. Versluninni hefur verið mjög vel tekið enda góð viðbót við flóru netverslana sem hafa verið að sækja í sig veðrið hér á landi. 

Hjá Útilíf störfuðu í árslok 42 starfsmenn í 25 stöðugildum. 

Zara

Zara er ein stærsta tískuverslunarkeðja í heimi og selur fatnað og fylgihluti fyrir dömur, herra og börn en fyrsta Zara-verslunin var opnuð á Íslandi árið 2001. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á hönnun eftir nýjustu tískustraumum, hraða vöruveltu, hagkvæma aðfangakeðju og sanngjarnt verð. Ein Zara-verslun er á Íslandi, staðsett í Smáralind, og er hún rekin með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni.

 

Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara felst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tískuheiminum hverju sinni og ráða viðtökur og óskir viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþróun. Nýjar vörur eru á boðstólnum í versluninni að lágmarki tvisvar í viku. 

Starfsmenn Zara í árslok voru 52 í 26 stöðugildum.

reykjavíkur apótek

Reykjavíkur Apótek varð hluti af samstæðu Haga í september 2019 þegar Samkeppniseftirlitið samþykkti kaup félagsins á 90% hlutafjár í apótekinu. 


Reykjavíkur Apótek býður upp á alla almenna lyfjafræðilega þjónustu, gott úrval af vítamínum og hjúkrunarvörum á samkeppnishæfu verði. Meginstarfsemi Reykjavíkur Apóteks er á sviði lyfsölu en auk þess selur fyrirtækið hjúkrunarvörur, heilsuvörur, snyrtivörur og hreinlætisvörur. Þá býður Reykjavíkur Apótek upp á heimsendingu á lyfjum og heilsufarsmælingar.

Tvö apótek eru starfræk á höfuðborgarsvæðinu, við Seljaveg og í Skeifunni í Reykjavík. 

Starfsmenn Reykjavíkur Apóteks voru 9 í árslok í 4 stöðugildum.