stjórnarhættir (S)
Stjórnarhættir Haga hf. eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins í kafla 1, hlutafé í kafla 2, hluthafafundi í kafla 3, um stjórn og forstjóra í kafla 4 og 5 og um reikningshald og endurskoðun í kafla 6. Gildandi starfsreglur, sem voru samþykktar af stjórn þann 20. apríl 2020, eru settar skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög og eru samþykktum félagsins til fyllingar, samanber grein 4.20 í samþykktum. Gildandi siðareglur, sem taka til allra starfsmanna Haga hf. og dótturfélaga þess, hafa einnig áhrif á stjórnarhætti félagsins, en þær voru samþykktar af stjórn Haga hf. þann 20. apríl 2020. Gildandi starfskjarastefna Haga hf. var staðfest á aðalfundi félagsins þann 7. júní 2019 og nær hún til allra helstu þátta í starfs- og launakjörum stjórnarmanna félagsins, forstjóra og annarra æðstu stjórnenda samstæðunnar. Endurskoðuð starfskjarastefna verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins þann 9. júní 2020.
Stjórn Haga er skipuð fimm einstaklingum en samkvæmt samþykktum félagsins skal við stjórnarkjör tryggja að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Á árinu 2019 voru konur 40% stjórnarmeðlima, þar af var stjórnarformaður félagsins einnig kona. Þá eru starfandi þrjár nefndir hjá félaginu, endurskoðunarnefnd, starfskjaranefnd og tilnefningarnefnd. Á árinu 2019 voru formenn allra nefnda kvenkyns.
G1 - Fjölbreytni stjórnar | Einingar | 2019 |
---|
Hlutfall kvenkyns stjórnarmeðlima (samanborið við karla) | % | 40 |
Hlutfall kvenkyns nefndarformanna (samanborið við karla) | % | 100 |
G2 - Sjálfstæði stjórnar | Einingar | 2019 |
---|
Hefur fyrirtækið lagt bann við að forstjóri gegni starfi stjórnarformanns? | já/nei | nei |
Hlutfall óháðra stjórnarmanna | fjöldi | 5 |
G3 - Launahvatar | Einingar | 2019 |
---|
Hljóta stjórnendur formlegan hvata til að ná árangri á sviði sjálfbærni? | já/nei | nei |
G4 - Kjarasamningar | Einingar | 2019 |
---|
Hlutfall starfsmanna sem fellur undir almenna kjarasamninga | X:1 | 0,94 |
G5 - Siðareglur birgja | Einingar | 2019 |
---|
Ber seljendum fyrirtækisins og birgjum þess að fylgja siðareglum? | já/nei | nei |
Ef svarið er já, hversu hátt hlutfall birgja hefur formlega staðfest að þeir fylgi siðareglum? | % | - |
Stjórn Haga hefur sett félaginu og dótturfélögum siðareglur, sem upphaflega voru samþykktar í stjórn félagsins í apríl 2011. Reglurnar hafa síðan þá verið endurskoðaðar árlega, nú síðast í apríl 2020.
G6 - Siðferði og spilling | Einingar | 2019 |
---|
Framfylgir fyrirtækið siðareglum og/eða stefnu gegn spillingu og mútum? | já/nei | já |
Ef já, hvaða hlutfall starfsmanna hefur formlega staðfest að það fylgi stefnunni? | % | 0% |
Vinna við innleiðingu á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hófst hjá samstæðunni á haustmánuðum 2017. Formleg persónuverndarstefna samstæðunnar var samþykkt af stjórn Haga í apríl 2020 en tilgangur persónuverndarstefnunnar er m.a. að upplýsa hvernig söfnun, geymslu og vinnslu persónuupplýsinga er háttað.
G7 - Persónuvernd | Einingar | 2019 |
---|
Framfylgir fyrirtækið persónuverndarstefnu? | já/nei | nei |
Hefur fyrirtækið hafist handa við að framfylgja lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga? | já/nei | já |
Nú er í fyrsta sinn birt samfélagsuppgjör samstæðu Haga vegna ársins 2019, skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq. Samfélagsuppgjörið er hluti af ársskýrslu þessari, auk þess sem samfélagsskýrsla er birt á vef félagsins.
G8 - UFS (ESG) skýrslugjöf | Einingar | 2019 |
---|
Birtir fyrirtækið sjálfbærniskýrslu?
| já/nei | já |
Inniheldur skýrslugjöf fyrirtækisins til stjórnvalda gögn um sjálfbærni? | já/nei | já |
G9 - Aðferðir við upplýsingagjöf | Einingar | 2019 |
---|
Veitir fyrirtækið upplýsingar um sjálfbærni til viðurkenndra aðila | já/nei | já |
Hefur fyrirtækið einblínt á einhver tiltekin sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDGs)? | já/nei | nei |
Setur fyrirtæki þitt markmið og gefur skýrslu um framvindu heimsmarkmiða SÞ? | já/nei | nei |
G10 - Endurskoðun / vottun þriðja aðila | Einingar | 2019 |
---|
Er upplýsingagjöf um sjálfbærni tryggð eða staðfest af þriðja aðila? | já/nei | nei |