Stjórnarhættir

Stjórn

Hagar_stjorn_2021_ba

Davíð Harðarson (f. 1976)

Davíð er formaður stjórnar en hann var fyrst kjörinn í stjórn Haga þann 6. júní 2018. Davíð er með M.Sc- gráðu í fjármálum frá University of Florida, Cand.Oecon- gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Davíð starfar sem fjármálastjóri Nordic Visitor. Hann var forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Nordic Visitor 2017, framkvæmdastjóri rekstar hjá Tommi's Burger Joint 2016, fjármálastjóri Elkem Ísland 2013-2016 og verkefnastjóri á fjármálasviði Elkem Ísland 2009-2013. Frá árinu 2004 til 2009 starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði Landsbanka Íslands og sem sjóðsstjóri á árunum 2000-2003. Hann situr í stjórnum Nordic Visitor hf., Magmahótel ehf., Terra Nova Sól ehf., Corivo ehf. og Libra Investment ehf. Davíð á 141.485 hluti í Högum hf. Engir aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Eiríkur s. Jóhannsson (f. 1968)

Eiríkur er varaformaður stjórnar en hann var kjörinn í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hann er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og lagði hann stund á framhaldsnám í fjármálum og alþjóðahagfræði við Vanderbilt University á árunum 1992-1994. Eiríkur tók við sem forstjóri Slippsins á Akureyri á árinu 2015. Áður var hann framkvæmdastjóri Steinvirkis hf., dótturfélags Glitnis banka frá 2008, og þar áður forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Baugi Group hf. Á árunum 2004-2005 var Eiríkur forstjóri Og Vodafone hf. og Dagsbrúnar hf. Áður hefur hann starfað sem forstjóri Fjárfestingafélagsins Kaldbaks, Kaupfélags Eyfirðinga sem og verið svæðisstjóri Landsbanka Íslands. Eiríkur er stjórnarformaður Samherja hf. og Samherja Holding ehf. auk félaga innan samstæðu þeirra. Hann er stjórnarmaður í Dysnesi þróunarfélagi og í stjórn og varastjórn Lítá ehf., Heir ehf. og Fjárhúsa ehf. Eiríkur á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hann er fjárhagslega tengdur Samherja hf. sem á 51.211.948 hluti í Högum hf. Aðrir aðilar fjárhagslega tengdir Eiríki eiga 74.500 hluti í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagins og samkeppnisaðila.

Eva bryndís helgadóttir  (f. 1972)

Eva var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er menntaður lögfræðingur (Cand. Jur.) frá Háskóla Íslands og hefur verið starfandi lögmaður frá útskrift, þar af sjálfstætt starfandi frá árinu 2003. Eva öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007. Eva starfar á lögmannsstofunni LMB Mandat slf., þar sem hún er einn eigenda. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal verið stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Eva situr í stjórn Jarðborana hf. og Kassetta ehf. Hvorki Eva né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

katrín olga jóhannesdóttir (f. 1962)

Katrin

Katrín Olga var kjörin í stjórn Haga hf. þann 18. janúar 2019. Hún er með Cand.Oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í viðskiptum frá Odense Universitet og nám í „corporate finance“ við London Business School. Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal sem stjórnarformaður og meðeigandi Já hf., framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta, framkvæmdastjóri einstaklingsmarkaðs Símans, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans og framkvæmdastjóri Navision Software Ísland. Þá var Katrín Olga formaður Viðskiptaráðs Íslands árin 2016-2020. Katrín Olga situr í stjórnum Landsnets hf. og Kríu konsulting ehf. Hún situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, í fjárfestingaráði Akurs fjárfestingasjóðs og tekur þátt í samráðsvettvangi um aukna hagsæld. Katrín Olga hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Icelandair Group, Ölgerðarinnar og Advania. Hvorki Katrín Olga né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Jensína kristín böðvarsdóttir (f. 1969)

Jensína var kjörin í stjórn Haga hf. þann 9. júní 2020. Hún er með MBA-gráðu frá University of San Diego, með áherslu á markaðsmál og neytendahegðun, og B.Sc.-gráðu í auglýsingafræði frá San Jose State University. Jensína er framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf. og Associate Partner hjá Valcon consulting, alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki. Áður var Jensína framkvæmdastjóri hjá Alvogen, VP Global Strategic Planning & HR, 2015-2019. Þar áður var hún framkvæmdastjóri þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum 2010-2015 og forstöðumaður sölu á einstaklingssviði Símans 2007-2010. Hún var einnig markaðsstjóri Globus 2004-2007 og framkvæmdastjóri hjá IMG (nú Capacent) 2001-2004. Jensína situr í stjórn Íslandssjóða hf. og er varamaður í stjórn hjá Sunnuvegi 13 ehf. og Vinnvinn ehf. Jensína er auk þess formaður tilnefningarnefnda Símans og VÍS. Áður var Jensína í stjórn Frumtaks 2010-2016, varamaður í stjórn Framtakssjóðs Íslands 2011-2015 og stjórnarmaður og lengst af stjórnarformaður Reiknistofu bankanna 2010-2012. Hvorki Jensína né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

Stjórn hefur lagt mat á óhæði stjórnarmanna gagnvart stórum hluthöfum og daglegum stjórnendum félagsins og teljast allir stjórnarmenn vera óháðir.